mánudagur, 26. febrúar 2007

Fréttir af húsnæðismálum

Ég sendi eftir farandi bréf til Borgarbyggðar í gær;

Kæra sveitastjórn.

Við erum ný hreyfing kvenna í Borgarhrepp hinum forna sem höfum það að markmiði að auka félagsleg tengsl í hreppnum. Höfum við margt á prjónunum í þeim efnum og má þar nefna meðal annars fjölskylduskemmtun á Jónsmessunni, jólatréskemmtun (sem hefur til nokkurra ára legið niðri í hreppnum), bingó og spilakvöld fyrir alla fjölskylduna og margt, margt fleira. Að sjálfsögðu eru skemmtanir okkar opnar öllum íbúum Borgarbyggðar þó svo upphaflegt markmið sé að auka félagsandann í dreifbýlinu.

Til þess að við getum starfað sem félag þurfum við á fundaraðstöðu að halda og einnig hús til að halda fyrirhugaðar skemmtanir í. Við erum svo heppin að hafa ágætt félagsheimili hér í Borgarhrepp. Valfell er alveg tilvalið til þess konar skemmtana sem við höfum í huga. En því miður er félagsheimilið okkar ekki í nógu góðu ásigkomulagi og vantar margt þar inn sem í dag telst nauðsynlegt til að geta haldið starfsemi í þess konar húsi. Má þar nefna uppþvottavél, ískáp og jafnvel er ekki einu sinni til tappi í eldhúsvaskinum svo á síðasta hreppsmóti mátti gjöra svo vel að vaska upp í bala.

Okkur datt því í hug að bjóða Borgarbyggð að við myndum safna fyrir þessum helstu hlutum sem vantar í Valfell og í staðinn fáum við að halda okkar fundi 1 sinnum í mánuði og allt að 5 uppákomur á ári í húsinu endurgjaldslaust. Við höfðum hugsað okkur að við myndum t.d. byrja á að safna fyrir ískáp þetta árið og svo uppþvottavél á því næsta o.s.fr.

Við teljum að báðir hagsmuna aðilar munu græða á þessu fyrirkomulagi. Ef húsið er í betra ástandi vilja fleiri taka það á leigu, og við sem ný stofnað félag með engan höfuðstól höfum þá húsnæði undir starfsemi okkar.
Því er von okkar að þið bregðist vel og fljótt við bón okkar svo við getum haldið áfram að gera okkar ágæta sveitafélag enn betra.

Fyrir hönd ónefnda menningarfélags kvenna í Borgarhrepp

Ólöf María Brynjarsdóttir
Ferjubakka II

Fékk ég svar í morgun fyrst frá Páli S. Brynjarssyni um það að hann hafi sent fyrirspurn okkar til Guðrúnar Jónsdóttur menningarfulltrúa, hún sendi mér skeyti nokkru síðar um að hún þyrfti nokkurn tíma til að kanna stöðuna en hvatti okkur til að sækja um styrk hjá Menningarsjóði Borgarbyggðar (sem ég sagði henni að við værum nú þegar að gera í svari mínu til hennar) en hún sagði einnig að sú umsókn okkar hefði engin áhrif á það hvort við gerðum svo samstarfsamning við sveitarfélagið um not á Valfelli eða ekki, sem ég var mjög ánægð með. Enda tel ég að þeir græði ekkert síður á því en við að gera þennan samning við okkur.

Sigrún Elíasar er að klára umsóknina fyrir okkur til menningarfélagsins og mun hún skila henni á morgun, er ég ekki með alveg á hreinu hversu háa upphæð hún vænist eftir en var viðmiðið hjá okkur í upphafi 200.000.
Verður vonandi komin niðurstaða í bæði þessi mál á næsta fundi sem er 20. mars n.k.

Ekkert frekar að frétta í bili hér
Ólöf María

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert frábærlega framtakssöm Olla mín. Ég er ekkert smá ánægð með þig. Tveir þumlar upp fyrir þér.
"Keep up the good work"
kv. Eva Rós

Félagsskapur kvenna í gamla Borgarhreppi. sagði...

*roðn* þú lætur mig bara fara hjá mér ;). En við erum duglegar konur og getum allt sem við viljum með sameiginlegu átaki.
sjáumst svo sem fyrst
kv Olla

Félagsskapur kvenna í gamla Borgarhreppi. sagði...

Ó, hvað ég var sár yfir að liggja meðviturndarlaus í flensu á meðan þið funduðuð um daginn. Skemmtileg síða,þetta er allt að koma hjá okkur,án þess að ég hafi nokkuð gert. Jú, sendi að vísu einhverja umsóknsómynd til Menningarsjóðs Borgarbyggðar en ég veit ekki með árangur af henni því hún var ekki alveg eftir uppskriftinni því við höfðum í raun enga kostnaðaráætlun um ákveðin verkefni. En við sjáum til.

Nafnlaus sagði...

Þetta er alveg frábært, krossum putta, tær, lappir, hendur og setjum fléttur í hárið..

Kv. Anna Dröfn.